1 00:00:10,093 --> 00:00:13,804 Ég veit þetta er klikkað, 2 00:00:13,805 --> 00:00:20,061 en Penny var leiðtogi mótstöðuflokks 3 00:00:20,062 --> 00:00:24,607 sem barðist gegn gervigreindinni 4 00:00:24,608 --> 00:00:27,443 sem setti tækin í hnakka allra. 5 00:00:27,444 --> 00:00:32,823 Og tækin, voru þau göldrótt? 6 00:00:32,824 --> 00:00:35,368 Nei, það var í næsta heimi. 7 00:00:35,369 --> 00:00:39,372 Það er allt önnur rulla. 8 00:00:39,373 --> 00:00:41,707 Einmitt, fyrirgefðu. 9 00:00:41,708 --> 00:00:45,628 Önnur rulla. 10 00:00:45,629 --> 00:00:48,214 Og ég þekki þig. 11 00:00:48,215 --> 00:00:51,217 Ég meina, úr mínum heimi. 12 00:00:51,218 --> 00:00:56,806 Þar varstu taugalíffræðingur, ekki sálfræðingur. 13 00:00:56,807 --> 00:00:58,224 Gott hjá mér. 14 00:00:58,225 --> 00:01:04,564 Og gerðist þetta allt eftir heimsendinn? 15 00:01:04,565 --> 00:01:07,066 Ó, fyrir. 16 00:01:07,067 --> 00:01:10,820 Eftir heimsendinn var mikil eftirspurn eftir taugalíffræðingum. 17 00:01:10,821 --> 00:01:14,741 Rottubóndum líka, fólk varð að borða. 18 00:01:18,370 --> 00:01:22,915 Ókei, hér er það sem við gerum. 19 00:01:22,916 --> 00:01:26,085 Þú tekur sama skammt af Shamoxil 20 00:01:26,086 --> 00:01:31,882 og tvöfaldan skammt af Trafederine. Sjáum hvort það hjálpi. 21 00:01:31,883 --> 00:01:35,094 Heldurðu að ég sé klikkaður? 22 00:01:35,095 --> 00:01:38,056 Við notum það orð ekki hér, er... 23 00:01:40,559 --> 00:01:44,312 Skiptir engu. Ég þarf að komast héðan. 24 00:01:44,313 --> 00:01:47,565 Í annan heim? 25 00:01:47,566 --> 00:01:49,400 Ekki bara annan. Góðan heim. 26 00:01:49,401 --> 00:01:52,737 Án risa mölflugna eða djöfla. 27 00:01:52,738 --> 00:01:54,656 Einmitt. 28 00:01:56,867 --> 00:01:59,952 Ef þér fer fram, 29 00:01:59,953 --> 00:02:04,498 er ekki útilokað að þú komist út einn daginn. 30 00:02:04,499 --> 00:02:08,002 Einn daginn? Hvað þýðir það? 31 00:02:08,003 --> 00:02:11,757 Einhvern tíma í ófyrirsjáanlegri framtíð. 32 00:02:13,091 --> 00:02:15,217 Hljómar eins og aldrei. 33 00:02:15,218 --> 00:02:19,222 Við notum það orð ekki hér. Það kemur fólki í uppnám. 34 00:03:27,499 --> 00:03:29,167 Opnaðu. 35 00:03:30,877 --> 00:03:32,336 Takk. 36 00:03:32,337 --> 00:03:35,256 Mundu að Dr. Fowler hækkaði skmamtinn 37 00:03:35,257 --> 00:03:36,841 svo við ættum að slaka á. 38 00:03:36,842 --> 00:03:38,719 Við? Ertu líka á þessum lyfjum? 39 00:03:41,138 --> 00:03:42,180 Þú ert fyndinn. 40 00:03:45,642 --> 00:03:47,394 Ég er hrifin af þér. 41 00:04:52,584 --> 00:04:55,587 Hver hannar svona gang? 42 00:05:15,482 --> 00:05:18,443 Bert, Guði sé lof. 43 00:05:20,278 --> 00:05:21,696 Komum okkur burt. 44 00:05:26,076 --> 00:05:29,328 Passaðu þig, maður. 45 00:05:29,329 --> 00:05:31,872 - Hver ert þú? - Hver er ég? 46 00:05:31,873 --> 00:05:33,041 Mamie Eisenhower. 47 00:05:35,710 --> 00:05:37,294 Ég er sherpa. 48 00:05:37,295 --> 00:05:39,463 Sherpa? 49 00:05:39,464 --> 00:05:41,674 Ég hélt að það væri þjóðerni. 50 00:05:41,675 --> 00:05:44,760 Það er það. Ég skipti yfir. 51 00:05:44,761 --> 00:05:46,178 Hitti stelpu á netinu. 52 00:05:46,179 --> 00:05:48,973 Ég fór í tíma, það var athöfn og allt, 53 00:05:48,974 --> 00:05:51,600 svo fór hún aftur til fyrrverandi. 54 00:05:51,601 --> 00:05:54,478 Ég er orðlaus. Fyrirgefðu. 55 00:05:54,479 --> 00:05:57,314 Ég er að vinna úr því í meðferð. 56 00:05:57,315 --> 00:05:59,358 Ég er að spá í ayahuasca. 57 00:05:59,359 --> 00:06:03,071 - Góð hugmynd. - Ég veit ekki, við komumst að því. 58 00:06:05,740 --> 00:06:08,367 Það er eitthvað að hurðinni. 59 00:06:08,368 --> 00:06:11,871 Halló, elskan, halló, mín kæra Halló, skvísan mín 60 00:06:11,872 --> 00:06:15,249 Sendu mér koss, Elskan, hjartað tekur hoss 61 00:06:15,250 --> 00:06:18,252 Ef þú neitar mér, nei Verður þú alein 62 00:06:18,253 --> 00:06:22,507 Elskan, síminn Segðu að ég sé þinn 63 00:06:23,925 --> 00:06:25,926 Stuart. 64 00:06:25,927 --> 00:06:30,640 - Hvernig komstu út? - Ég gerði það ekki. Þú ert í vímu. 65 00:06:34,603 --> 00:06:37,104 Fleira var það ekki. 66 00:06:37,105 --> 00:06:38,981 Hvernig komstu út? 67 00:06:38,982 --> 00:06:41,775 Þið skiljið ekki. Ég get ekki verið hér. 68 00:06:41,776 --> 00:06:43,485 Þetta er ekki raunverulegt. 69 00:06:43,486 --> 00:06:45,362 Ég get ekki verið í þessum heimi! 70 00:06:45,363 --> 00:06:47,072 Þetta er ekki raunverulegt! 71 00:06:47,073 --> 00:06:49,075 Hvað? 72 00:06:54,581 --> 00:06:57,167 Bloom, þú fékkst gest. 73 00:07:01,880 --> 00:07:04,549 - Denise? - Þarna er strákurinn minn. 74 00:07:07,135 --> 00:07:08,844 Þú verður að koma mér burt. 75 00:07:08,845 --> 00:07:11,847 Ég vildi að ég gæti það, elskan. 76 00:07:11,848 --> 00:07:15,184 - Fyrst þarf þér að batna. - Það er ekkert að mér. 77 00:07:15,185 --> 00:07:18,938 Stuart, þú þarft hjálp. Ég sakna þín. 78 00:07:18,939 --> 00:07:21,065 Börning sakna þín. 79 00:07:21,066 --> 00:07:23,233 Á ég börn? 80 00:07:23,234 --> 00:07:24,568 Guð minn góður. 81 00:07:24,569 --> 00:07:27,655 - Er ég pabbi? - Þú ert frábær pabbi. 82 00:07:27,656 --> 00:07:30,407 Jaden og Talia elska þig svo mikið. 83 00:07:30,408 --> 00:07:33,869 Ókei, mér mun batna. 84 00:07:33,870 --> 00:07:35,622 Takk. 85 00:07:37,958 --> 00:07:40,292 Hver vildi skýra þau Jaden og Talia? 86 00:07:40,293 --> 00:07:43,129 - Þú. - Ég þarf hjálp. 87 00:07:46,341 --> 00:07:49,760 Ókei, áhugaverð túlkun. 88 00:07:49,761 --> 00:07:53,098 Stuart, ertu með einhverjar spurningar? 89 00:07:54,349 --> 00:07:56,392 Stuart? 90 00:07:56,393 --> 00:07:57,811 Ókei. 91 00:08:14,035 --> 00:08:18,664 Mamma, pabbi, ég þarf að segja eitt. 92 00:08:18,665 --> 00:08:20,833 Svo mér leið sem ég væri ósýnileg. 93 00:08:20,834 --> 00:08:22,877 Nei pabbi, þú ert fífl. 94 00:08:40,937 --> 00:08:43,230 Hann átti son sem hét Stuart. 95 00:08:43,231 --> 00:08:47,568 - Og hér... - Guð. Hann er kominn heim. 96 00:08:47,569 --> 00:08:49,903 Ég var óttasleginn í fortíðinni. 97 00:08:49,904 --> 00:08:52,824 Nú finn ég ástina. 98 00:08:55,368 --> 00:08:57,494 Vel gert, klöppum fyrir ykkur. 99 00:08:57,495 --> 00:09:00,457 Stuart. Vel gert. 100 00:09:09,007 --> 00:09:12,301 - Þú leggur hart að þér. - Já. 101 00:09:12,302 --> 00:09:15,304 Ég er með falleg skilaboð frá félagsráðgjafanum. 102 00:09:15,305 --> 00:09:19,141 - Nú? - Bloom er virkilega skapandi 103 00:09:19,142 --> 00:09:20,309 í leðurvinnslunni. 104 00:09:20,310 --> 00:09:23,145 Ég gerði þetta veski. 105 00:09:23,146 --> 00:09:27,983 Þrjú hólf og budda. 106 00:09:27,984 --> 00:09:30,903 Það þarf alltaf stað fyrir kinkið. 107 00:09:30,904 --> 00:09:35,032 Hvernig líður okkur með hina heimana? 108 00:09:35,033 --> 00:09:36,200 Gott að þú spyrð. 109 00:09:36,201 --> 00:09:41,330 Ég skil nú að ég var alveg klikkaður. 110 00:09:41,331 --> 00:09:46,502 Ég myndi ekki nota það orð, en ég hugsaði það. 111 00:09:46,503 --> 00:09:48,253 Ég hef þó nokkrar áhyggjur. 112 00:09:48,254 --> 00:09:52,257 Nei. Ég borða vel, sef vel. 113 00:09:52,258 --> 00:09:56,595 Ég hló upphátt yfir Stepbrothers í gær. 114 00:09:56,596 --> 00:09:58,680 Yfir réttu senunum. 115 00:09:58,681 --> 00:10:00,974 Ég er greinilega heilbrigður. 116 00:10:00,975 --> 00:10:03,268 Það er ekki þitt að segja, er það? 117 00:10:03,269 --> 00:10:05,688 Nei, það er þín ákvörðun. 118 00:10:07,732 --> 00:10:10,360 - Hefurðu ákveðið þig? - Já. 119 00:10:15,323 --> 00:10:18,367 Ég get gert flott belti handa þér. 120 00:10:18,368 --> 00:10:21,496 Óþarfi. Þú mátt fara heim. 121 00:10:24,999 --> 00:10:27,334 Takk, takk! 122 00:10:27,335 --> 00:10:29,586 Það var ekkert. 123 00:10:29,587 --> 00:10:32,714 Mun Bert sleppa bráðlega? 124 00:10:32,715 --> 00:10:36,218 Það er enginn Bert hér. 125 00:10:36,219 --> 00:10:39,179 Auðvitað ekki. Ég var að stríða þér. 126 00:10:39,180 --> 00:10:41,266 Þú náðir mér. 127 00:10:42,267 --> 00:10:44,102 Ég ætla að fara núna. 128 00:10:45,145 --> 00:10:46,228 Bæ. 129 00:10:46,229 --> 00:10:49,941 Ef einhver sem ég þekki missir vitið sendi ég þau hingað. 130 00:11:13,047 --> 00:11:17,426 - Hvernig líður þér? - Frábærlega. 131 00:11:17,427 --> 00:11:23,473 - Ég er svo glöð að þú sért laus. - Ég líka. 132 00:11:23,474 --> 00:11:28,229 Ég vil ekki leggja álag á þig, en... 133 00:11:29,314 --> 00:11:32,025 Mamma saknaði Stóra Pabba. 134 00:11:34,110 --> 00:11:36,236 - Er það ég? - Já. 135 00:11:36,237 --> 00:11:38,113 - Ókei, bara að athuga. - Já. 136 00:11:38,114 --> 00:11:42,993 Stór er frábært lýsingarorð. 137 00:11:42,994 --> 00:11:46,663 Nema það eigi við um grunsamlegan hnúð. 138 00:11:46,664 --> 00:11:48,999 Við verðum að stoppa á leiðinni. 139 00:11:49,000 --> 00:11:50,543 - Nú? - Þú sérð það. 140 00:11:52,587 --> 00:11:54,797 Stóri Pabbi elskar óvæntar uppákomur. 141 00:11:57,634 --> 00:11:59,177 Ó, já. 142 00:12:01,596 --> 00:12:05,308 STUART BLOOM HEIMAR LISTASÝNING 143 00:12:07,185 --> 00:12:08,602 Denise, hvað er þetta? 144 00:12:08,603 --> 00:12:11,688 Sýningin þín. Þú ert vinsælasti listamaðurinn. 145 00:12:11,689 --> 00:12:13,191 Er það? 146 00:12:20,907 --> 00:12:22,783 - Aðalmaðurinn. - Bert. 147 00:12:22,784 --> 00:12:24,576 Hvað ertu að gera hér? 148 00:12:24,577 --> 00:12:26,787 Þetta er mitt gallerý. 149 00:12:26,788 --> 00:12:29,915 Komdu, allir vilja hitta þig. 150 00:12:29,916 --> 00:12:33,669 Er ég kurteis frægur eða dónalegur frægur? 151 00:12:33,670 --> 00:12:35,754 - Dónalegur. - Æði. 152 00:12:35,755 --> 00:12:37,965 Já, hér er ég! 153 00:12:37,966 --> 00:12:39,092 Gott að sjá þig. 154 00:12:41,094 --> 00:12:42,511 Takk kærlega. 155 00:12:42,512 --> 00:12:46,265 Denise, ég þarf spritt. Takk. 156 00:12:46,266 --> 00:12:49,810 Ég man ekki eftir að mála þetta. 157 00:12:49,811 --> 00:12:52,272 - Vel gert. - Gott að sjá þig, já. 158 00:12:55,275 --> 00:12:56,651 Hvað er þetta? 159 00:13:07,120 --> 00:13:09,247 Ókei. 160 00:13:10,498 --> 00:13:12,082 Hver vill pulsu? 161 00:13:12,083 --> 00:13:13,375 - Ég! - Ég! 162 00:13:13,376 --> 00:13:16,045 Heimagert límonaði. 163 00:13:18,965 --> 00:13:20,549 - Hvað segirðu? - Frábært. 164 00:13:20,550 --> 00:13:24,137 Hvernig hélt ég að það væri til betri heimur en þessi? 165 00:13:25,930 --> 00:13:27,473 Velkominn aftur, granni. 166 00:13:29,559 --> 00:13:32,561 - Kripke? - Sekur. 167 00:13:32,562 --> 00:13:34,187 Erum við nágrannar? 168 00:13:34,188 --> 00:13:36,189 Við erum meira en það. 169 00:13:36,190 --> 00:13:39,067 Ég hélt á syni þínum í umskurðinum. 170 00:13:39,068 --> 00:13:40,528 Erum við gyðingar? 171 00:13:41,612 --> 00:13:43,238 Hvernig var geðsjúkrahælið? 172 00:13:43,239 --> 00:13:45,032 Þetta er spítali, ekki hæli. 173 00:13:45,033 --> 00:13:47,659 - Já, fyrir klikkaða. - Barry. 174 00:13:47,660 --> 00:13:50,162 Ég er að djóka. Spurðu bara eiginmanninn. 175 00:13:50,163 --> 00:13:52,581 Er hann með stæla? 176 00:13:52,582 --> 00:13:55,168 - Gary? - Hæ, Stuart. 177 00:13:56,586 --> 00:13:59,004 Ég verð að leggja mig. 178 00:13:59,005 --> 00:14:02,591 - Er allt í lagi? - Ég er ekki viss. 179 00:14:02,592 --> 00:14:05,218 Það eru greinilega enn lausar skrúfur. 180 00:14:05,219 --> 00:14:08,389 - Þú ert hræðilegur. - Þú elskar það. 181 00:14:11,225 --> 00:14:15,270 Denise, ég ætla út að labba. 182 00:14:15,271 --> 00:14:18,274 - Viltu að ég komi? - Nei, ég verð fljótur. 183 00:14:28,576 --> 00:14:31,245 VAKNAÐU 184 00:14:36,042 --> 00:14:38,378 HALLÓ? 185 00:14:40,213 --> 00:14:41,839 HALLÓ? 186 00:14:44,634 --> 00:14:47,095 VELKOMIN 187 00:15:22,839 --> 00:15:29,846 MIÐSTÖÐ TEIKNIMYNDASAGNA, SPILA OG SAFNMUNA 188 00:15:36,894 --> 00:15:39,855 Þú ert ekki að hlusta. 189 00:15:39,856 --> 00:15:44,568 Miðflóttaafl Þórshamars heimilar honum að fljúga. 190 00:15:44,569 --> 00:15:48,488 En Þór hendir honum, það brýtur fyrsta lögmál Newton. 191 00:15:48,489 --> 00:15:51,867 Geturðu skorið úr um þetta? 192 00:15:51,868 --> 00:15:55,912 Eiga eðlisfræðilögmál yfir Æsi? 193 00:15:55,913 --> 00:15:59,124 Auðvitað ekki, Þór og aðrir íbúar Ásgarðs 194 00:15:59,125 --> 00:16:02,419 eru til utan okkar heims. 195 00:16:02,420 --> 00:16:04,630 Hvernig veit ég þetta? 196 00:16:18,519 --> 00:16:22,023 STUART BJARGAR EKKI HEIMINUM 197 00:16:23,191 --> 00:16:24,399 Almáttugur. 198 00:16:24,400 --> 00:16:26,068 STUART BJARGAR EKKI HEIMINUM 199 00:16:45,046 --> 00:16:47,172 - Hvernig var gangan? - Góð. 200 00:16:47,173 --> 00:16:51,885 - Hvað ertu með? - Ég keypti teiknimyndasögu. 201 00:16:51,886 --> 00:16:53,011 Lestu svoleiðis? 202 00:16:53,012 --> 00:16:55,765 Fólk les þær! Hvað er að þér? 203 00:17:00,019 --> 00:17:03,439 Fyrirgefðu, þetta var of hátt. 204 00:17:23,960 --> 00:17:26,211 Það var venjulegur þriðjudagur í CalTech. 205 00:17:26,212 --> 00:17:29,673 Klárt fólk, að gera klára hluti. 206 00:17:29,674 --> 00:17:35,762 Leonard, Sheldon og Howard smíðuðu skammtaflækjutæki. 207 00:17:35,763 --> 00:17:39,975 Stuart Bloom kom við með fréttir af hreinni ristilspeglun. 208 00:17:39,976 --> 00:17:43,353 Hann rakst í tækið í æsingnum, sem datt á gólfið. 209 00:17:43,354 --> 00:17:47,315 - Er allt í lagi, elskan? - Já, augnablik. 210 00:17:47,316 --> 00:17:52,195 Eftir það sat Stuart uppi með örlög heimsins. 211 00:17:52,196 --> 00:17:54,239 - Jesús. - Viltu hægðarlosandi? 212 00:17:54,240 --> 00:17:55,991 Nei, ég er góður. 213 00:17:55,992 --> 00:17:57,867 Ekki rembast. Þannig dó Elvis. 214 00:17:57,868 --> 00:18:00,412 Já, já, já. Einmitt. 215 00:18:00,413 --> 00:18:04,165 Honum bárust skilaboð, en fíflið fattaði það ekki. 216 00:18:04,166 --> 00:18:06,710 Ég er ekki fífl, þú ert fífl. 217 00:18:06,711 --> 00:18:09,004 Það er stólpípa undir vaskinum. 218 00:18:09,005 --> 00:18:10,589 Frábært, takk. 219 00:18:10,590 --> 00:18:12,215 Þú þarft að laga þetta. 220 00:18:12,216 --> 00:18:13,967 Við sendum leiðbeiningar, 221 00:18:13,968 --> 00:18:17,304 en fyrst, þarftu að sleppa úr fangelsi. 222 00:18:17,305 --> 00:18:19,389 Fangelsi? 223 00:18:19,390 --> 00:18:22,225 Ekkert af þessu eru raunverulegt! 224 00:18:22,226 --> 00:18:24,061 Ég er að koma! 225 00:18:28,190 --> 00:18:29,941 ÞREYTTUR Á NÚVERANDI HEIMI? 226 00:18:29,942 --> 00:18:31,652 FERÐASTU MILLI HEIMA. 227 00:18:36,616 --> 00:18:39,327 STUART BLOOM 228 00:18:48,753 --> 00:18:52,047 - Hvað ertu með granni? - Ekkert. 229 00:18:52,048 --> 00:18:53,381 Lítur ekki þannig út. 230 00:18:53,382 --> 00:18:56,760 Ekki skipta þér af, Barry! 231 00:18:56,761 --> 00:18:58,554 Þetta var dónalegt. 232 00:19:08,064 --> 00:19:09,607 Hvað er þetta? 233 00:19:11,359 --> 00:19:14,320 - Sérðu þetta? - Já. Hvað er þetta? 234 00:19:16,864 --> 00:19:21,743 Veltirðu aldrei fyrir þér hvort þetta sé raunverulegt? 235 00:19:21,744 --> 00:19:22,827 Hvað áttu við? 236 00:19:22,828 --> 00:19:28,750 Angrar það þig ekki að allt virðist vera fullkomið? 237 00:19:28,751 --> 00:19:31,920 - Nei, þetta er draumalífið okkar. - Einmitt. 238 00:19:31,921 --> 00:19:35,548 Hvenær hafa mínir draumar ræst? 239 00:19:35,549 --> 00:19:39,886 Þú ert að hræða mig. - Ertu hrædd núna? 240 00:19:39,887 --> 00:19:42,640 Spenntu stjörnuna. 241 00:19:44,558 --> 00:19:45,851 AÐALROFI 242 00:20:24,181 --> 00:20:26,558 Ég er sköllóttur. 243 00:20:26,559 --> 00:20:28,811 Hvað gerðir þú? Hvar erum við? 244 00:20:32,106 --> 00:20:35,442 Virðist vera The Matrix. 245 00:20:35,443 --> 00:20:38,319 Við erum í raun laus þaðan. 246 00:20:38,320 --> 00:20:42,198 Svo hvað, húsið, börnin, sjónvarpið, var ekki raunverulegt? 247 00:20:42,199 --> 00:20:44,576 Fjandinn, ég naut mín þarna. 248 00:20:44,577 --> 00:20:48,747 Ég var hommi en maðurinn minn var sætur. 249 00:20:48,748 --> 00:20:52,417 - Þetta er The Matrix. - Við vitum það. 250 00:20:52,418 --> 00:20:54,712 Nei, þetta er alvöru sena úr myndinni. 251 00:20:57,757 --> 00:20:59,883 Það er rétt. 252 00:20:59,884 --> 00:21:01,384 Við erum enn föst. 253 00:21:01,385 --> 00:21:04,095 Ertu viss? Virðist sem við höfum sloppið. 254 00:21:04,096 --> 00:21:05,847 Þau vilja að við höldum það. 255 00:21:05,848 --> 00:21:08,893 - Hver eru þau? - Ég veit það ekki. 256 00:21:11,479 --> 00:21:12,480 Bíðið. 257 00:21:51,602 --> 00:21:54,145 Eruð þið tilbúin? 258 00:21:54,146 --> 00:21:56,231 Við vitum ekkert hvar við lendum. 259 00:21:56,232 --> 00:21:58,858 Hvar sem er, svo lengi sem ég er ekki hommi. 260 00:21:58,859 --> 00:22:01,069 Svo óviðeigandi. 261 00:22:01,070 --> 00:22:03,572 Ég veit, það er ekki val. 262 00:22:17,294 --> 00:22:20,004 Þetta er ekki Pasadena. 263 00:22:20,005 --> 00:22:21,924 - Er þetta raunverulegt? - Sýnist það. 264 00:22:23,634 --> 00:22:29,180 Sandur, lífræn efni, leir, kannski kolinít eða montmorillonít. 265 00:22:29,181 --> 00:22:32,183 - Hvað er það? - Mold. 266 00:22:32,184 --> 00:22:35,228 Af hverju sagðir þú það ekki bara? 267 00:22:35,229 --> 00:22:37,522 Ég var að sýna mig smá. 268 00:22:37,523 --> 00:22:39,066 Heyrið þið eitthvað? 269 00:22:54,415 --> 00:22:57,208 Ekki meiða. 270 00:22:57,209 --> 00:22:58,585 Friður. 271 00:22:58,586 --> 00:23:01,296 Við komum langt. 272 00:23:01,297 --> 00:23:03,882 Við góð. 273 00:23:03,883 --> 00:23:05,592 Hvað heldur þú? 274 00:23:05,593 --> 00:23:09,305 Ég veit ekki, þau hljóma heimsk. 275 00:23:13,350 --> 00:23:17,354 Þýðandi: Ingibjorg Aldis Hilmisdottir Iyuno